í gær var ég með afgang af læri og bjó til Ekta Grísku Lambapítuna góðu ég gerði líka heimagert pítubrauð, það er einfalt þarf að vera töluverðan tíma í hefingu. það voru allir sammála um að þetta væri svo miklu betra en pítubrauðið sem maður kaupir út í búð.
Blandið saman þurrefnum í skál, hellið svo olíunni og u.þ.b 250ml af vatninu saman við og hnoðið, ef degið er of þurrt þá er bætt við smá vatni þar til það er hæfilega blautt. degið þarf að vera dáldið lint en þarf að vera þannig að hægt sé að hnoða það þannig að það á að vera næstum klístrað, hnoðið í u.þ.b. 5 mín, ég geri ráð fyrir að það þoli vel að vera hnoðað í hrærivél. Setið í skál og látið lyfta sér í 2 klst.
Þegar degið hefur lyft sér ætti það að vera nær tvöfalt að stærð þá er það tekið úr skálinni og hnoðað í c.a. mínútu og skippt í 8 kúlur og geymt á borðinu í 15 mín, á meðan kúlurnar bíða er ofninn stylltur á 200°c eða 180°c ef þið eruð með blástur. þá er það flatt út í hringlaga kökur sem eru 2-3 mm að þykkt og bakað í 6-8 mín, þar til brauðin blása út og taka lit.
- 450 gr brauðhveiti
- 1 tsk sjávarsalt
- 1 umslag þurrger ( c.a. 3,5 tsk )
- 1 msk ólíuolía
- 300 ml volgt vatn ( ekki víst að þið notið allt vatnið)