- 3-4 kjúklingabringur ( hakkaðar )
- 1 búnt vorlaukur
- 1/2 hvítkálhaus, fínt skorin
- 1 msk engifer raspaður eða mjög fínt saxaður
- gott búnt coriander saxað
- 2 -3 gulrætur saxaðar
- 3 hvítlauksgreirar fínt saxaðir
- 2-3 msksesamolía
- 1 msk kínverskt five spice ( fæst í indónesísku búðinni á suðurlandsbraut )
- 2 msk hnetusmjör
- svartur pipar
- 1-2 msk soyasósa
- vörrúllu blöð, ( fæst í indónesísku búðinni á suðurlandsbraut )
- ólífuolía eða kokosolía til steikingar
- vatn til að bera á samskeitin á rúllunum
- ólífuolía til að pensla rúllurnar
Byrjið á að steikja kjúklinginn sem búið er að hakka í hakkavél eða mixer, þegar kjúklingurinn er steiktur þá er kryddinu og öllu gærmnemir nema kálinu bætt í og stekt í 3-4 mínútur þá er sesam olíuni, hnetusmjörinu og sojasósunni blandað saman við og svo kálinu bætt í og steikt áfram í um 5 mínútur, kálið ætti ekki að vera alveg mjúkt, smakkið til með salti og kryddi og kælið aðeins áður en þið setið á vorrúlludegið.
Notið eitt til 2 blöð fyrir hverja rúllu, með þessu sem ég er með er nóg að nota eitt blað fyrir hverja. Setjið mátulega mikið af maukinu á miðju á hverri örk og brjótið inn af og rúllið upp eins og myndirnar sýna hafið litla skál með vatni til að dreipa á endan til að þetta lokist vel , þegar allar rúllurnar eru tilbunar er þær lagðar á bökunarpappír penslið síðan hverja rúllu alveg með ólífu olíu, setið síðan í ofnin og steikið þar til fallega brúnt við 240°c, hitin fer eftir ofnum.
Berið fram með hrísgrjónum og sweet chili sósu
Ef það koma göt á degið þegar þið eruð að rúlla þessu upp þá setð þið bara annað vorrúlludeig blað utan um.Auðvitað er líka gægt að steikja rúllurnar í olíu sem er líka gott ég er bara á því að steikja þær í ofni til að minka olíuna sem fer á þær.