Ljúft í munn og maga
Ljúft í munn og maga
  • Blog
  • Allar uppskriftir
  • Forréttir
    • Hörpudiskur í hvítvínssósu
    • Humar með orange, chili smöri
  • Kjöt og kjötréttir
    • Beikon hjúpaður hakkréttur í ofni
    • Indónesískar Kjötbollur
    • Geggjaður mexíkóskur ofnréttur
    • BBQ svínarif og hrásalat (coleslaw)
    • Úr afgangskjöti má gera dýrindis máltíð
    • Innbökuð nautalund eða beef wellington á áramótum
    • Beikonvafðar fylltar svínalundir
    • Klikkaður grillaður gráðosta borgari með beikoni og ananas
    • Marinerað og grillað lambalæri
    • Spænskar kjötbollur í tómatsósu
    • Nautasteik
    • Basic en góðar kjötbollur
    • Chili con carne
  • Indverskir réttir
    • Tandoori tigris rækjur
    • Bhuna
    • Madras kjúklingur
    • Jalferazi Kjúklingur
  • kjúklinga réttir og annað fuglakjöt
    • Hasselback kjúklingur með ricotta osti
    • Eldfast mót fullt af hollustu
    • Ljúfur Fennel Kjuklingur
    • Kjúklingalæri marineruð í appelsínu og five spice
    • Góð marinering fyrir kjúkling
    • Fyllt kalkúnalund með sveppasósu
    • Kjúklingapottréttur
    • Risotto með kjúkling og chorizo
    • Fáranlega góðar kjúklingarúllur með spínat og parmessan fyllingu
    • Piri piri, grillaður kjúklingur 
    • Afgangurinn af Piri piri kjúklingnum varð að ljúfengri máltíð
    • Kjúklingur á pönnu með sólþurkuðum og hvítlauk
    • Kjúklinga vorrúllur
    • Grilluð kjúklingaspjót með satay sósu, hrísgrónum og sweet chili salati
    • Chili/hvítlauks kjúklingabringur
    • Fyllt kalkúnabringa með parmaskinku og sólþurkuðum tómötum
    • Grillaðar kalkúnasneiðar, sætar kartöflur og kúrbítur
    • Líbanskur kjúklingur
    • Hunagsristuð önd
    • Piri Piri kjúklingur
    • Kjúklingur í ofni með Expresso rub
    • fyllt Kalkúnabringa
  • pastaréttir
    • Tortellini með piparosti og spergilkáli
    • Kjúklingapasta sem klikkar ekki
    • Heimagert Ravioli með kjötfyllingu
    • Kjúklingapasta í ofni
    • Rugl gott pasta með kjúkling, aspas og rjómaosti
    • Kjötsósan góða fyrir spaghetti
    • kjúklingur og spelt tagliatelle
    • Ferskt spelt pasta
    • Ferskt pasta
    • Carbonara pasta með beikon og grænum baunum
    • Lasagna að mínum hætti
    • Sítrónupasta með skinku.
  • Fiskréttir
    • Fiskur í ofni með sólþurkuðum og feta
    • Smálúða á osta risotto beði
    • Ofnbakaður lax me five spice
    • Sítrónu þorskur í ofni
    • Mín útgáfa af plokkfisk
    • Þorskur með parmaskinku og cheddarosti
    • Pönnusteiktur lax með bankabyggi og salati
    • Fiskur með kókos og engifer
    • Þorskur á spínatbeði
    • góðar Fiskibollur
    • Rauðspretturúllur með sólþurkuðum tómötum
    • Fiskur með AB Mjólk og pestó
    • Fiskur með aspas og fl bakað í ofni .
    • Saltfiskur á miðjarðarhafsvísu
  • sósur og meðlæti
    • Bökuð kartöflu mús með bacon
    • Einfalt kartöflugratin
    • Grillað mais á stöngli
    • Tómatsallat með mozzarella
    • Góð sveppasósa
    • Sweet chili salat
    • Dýrindis kjúklingabauna salat
    • Koníakssósa
    • Chimichurri
    • Steikt bankabygg með hvítlauk
    • bernaise sósa
    • Rauðvínssósa með steikinni
    • Köld hvítlaukssósa
    • Sósa fyrir kalkún
    • Guacamole
    • Sætkartöflumús
    • hvítkálsalat
    • Smjörsteiktur Aspas
    • Rauðkál
  • Austurlönd
    • Indónesískur hvítlaukskjúklingur
    • Eggaldin feta og kryddjurtabollur
  • Súpur
    • Ungversk gullash súpa
    • Fiskisúpa Margrétar Lindu
    • ný útgáfa af tómatsúpunni
    • Kjúklingasúpa með hvítum baunum og góðu gúmelaði
    • Súpergóð tómatsúpa
    • Rjómalöguð súpa með heilum blómkálsbitum
    • Rjómalöguð sveppasúpa
    • Ítölsk grænmetissúpa með tvisti
    • Sætkartöflusúpa með chili, bankabyggi og kjúklingabringum
  • Brauðréttir og Brauð
    • Pitubrauð
    • Heilhveitibrauð sem er alltaf gott
    • Spelt Pizza
    • Kryddbrauð sem passar með súpum og ýmsum öðrum réttum
    • Afar einfalt brauð úr smiðju Sullivan street
    • Pizza a la Margrét
    • Focaccia brauð
    • Gerlaust nannbrauð 6
    • Brauðbaka með blaðlauk,tómötum, skinku og beikoni
    • Skinkubrauðterta
  • kökur og kaffibrauð
    • Sýrópskökur ( piparkökur)
    • Alger Blúnda
    • Hnoðuð lagterta, ( randalín )
    • Þjóðhátíða snúðar og vínarbrauð
    • Dásamlega góðar súkkulaðistangir
    • Súkkulaði skúffukaka
    • Súkkulaðibita kaka Erlu
    • Lagterta (hrærð)
    • Kókos toppar
    • Bananabrauð
    • Rabbabara pæ
    • Súkkulaðibita muffins
    • Spelt skonsur
    • Kleinur
    • Gömul en góð uppskrift af Vatnsdeigs bollum
    • Tertur
    • Kokosbollu terta
    • sörur
    • Súkkulaðibitakökurnar hennar ömmu
  • Eftirréttir
    • Súkkulaðimús
    • Bailys frómas
    • Hindberjasósa
    • Guðdómleg frönsk hindberjabaka
    • Mascarpone krem með hindberjasósu
    • Toblerone ís
  • Heilsuréttir og hollusta
    • Ofurhollt hrökk kex
    • Hummus
    • Grænmetis tortillur með heimagerðu salsa
  • Ýmislegt
    • Bökuð kartöflumús með beikon
    • fínt nammi fyrir hundana á heimilinu
    • Lambapíta með Tzatziki sósu
    • Heimagerður Ricotta ostur
    • Ofur ljúft Beileys konfekt
    • Silunga salat
  • köku skreytingarnar mínar
  • Um mig

Tortellini með piparosti og  spergilkáli

6/4/2019

0 Comments

 
Picture
Einhver nostalgia greip mig um daginn þegar ég sá ferskt tortellini því á árum áður fannst mér þessi réttur rosalega góður en þar sem í búðum fekst bara þurkað tortellini sem er ekkert sérstakt þá var ég hætt að elda þetta. Hvað sem því líður keypti ég ferskt tortellini og eldaði réttinn góða sem er kannski svoldið þannig að maður vill nú ekki hafa þetta nema sjaldan þó gott sé. 
þessi uppskrift ætti að duga fyrir 6 manns. 
  • 500gr tortellini ( ég keypti úr fersku pasta) 
  • 1 gott búnt spergilkál 
  • 250 gr sveppir 
  • 1 paprika ( hvað lit sem er )
  • 1 laukur 
  •  5 hvítlauksrif 
  • 500ml rjómi eða matreiðslurjómi 
  • 1 piparostur 
  • salt og pipar 
  • rifin ostur ( eftir smekk) 
  • ólífuolía til steikingar
 
Ef notað er þurrkað tortellini þá þarf að sjóða það áður en ég notaði ferskt svo það fór bara beint í eldfasta mótið. 
Spergilkál, laukur, paprika og sveppir er skorið niður og léttsteikt í ólífuolíu og kryddað með salt og pipar. Piparosturinn er skorin niður,  settur í pott og  bræddur í rjómanum. Öllu blandað saman og sett yfir tortellini sem er í eldfasta mótinu. Rifin ostur settur yfir og bakað í ofni þar til osturinn er gullinn. borið fram með salati og snittubrauði.  
þetta bragðaðist mikið betur en minningin sagði mér. 
0 Comments

May 28th, 2019

5/28/2019

1 Comment

 
Nafnaterta gerð fyrir Ísold Emmu ömmustelpuna mína 
1 Comment

January 07th, 2018

1/7/2018

1 Comment

 
Gleðilegt nýtt ár. Ég hef nú ekki verið með marga nýja pósta á liðnu ári en nokkra þó. vonandi verða þeir fleyri á nýja árinu en hver veit. 
Barnabarnið á afmæli á fyrstu dögum árssins og auðvitað föndrar ammann við tertu fyrir drenginn og hefur gaman af, að þessu sinni varð StarWars fyrir valinu og stóðst hún væntingar drengsins 

Picture
Picture
1 Comment

Hollur og góður morgunmatur

9/1/2017

1 Comment

 
Picture
Uppáhalds morgunmaturinn minn er svona og ekki skemmir að hann er bráðhollur. Auðvitað má stækka skammtinn fyrir þá sem það vilja en fyrir maga eins og minn þá dugar þetta mjög vel. 
  • c.a. 1 msk tröllahafrar 
  • 1 msk möluð hörfræ ( fást á góðu verði í costco) 
  • 1msk chiafræ ( set þau ekki alltaf ) 
  • c.a. 1/2 tsk hrá kakó duft 
  • c.a. 1/2 tsk Kanill 
  • rúmlega 1/2 bolli möndumjólk ( eða bara eftir smekk hvers og eins ) 
ég set þetta í skál að kvöldi og blanda saman og læt plast filmu yfir og set í iskapinn og þetta er tilbúið að morgni og þá læt ég ber ef ég á þau til eða niðurskorið epli eða hvað hugurinn girnist þann daginn og toppa með smávegis af kakónibbum, en þær er ekki gott að setja fyrr en bara um leið og ég fer að borða annars geta þær gert matin rammann á bragðið. Kanillinn hefur þann eiginleika að gefa dálitla sætu en þeir sem vilja meira sætubragð geta notað niðurskornar döðlur einnig gefur kókosmjöl dálitla sætu. 
1 Comment

nýustu kökurnar

6/6/2017

1 Comment

 
ég er nú ekki mikið búin að gera mikið af því skrifa hér inn undanfarið en mátti til með að setja þessar tvær hér inn, þær voru gerðar á síðustu dögum 
1 Comment

indónesískur hvítlaukskjúklingur

5/10/2017

1 Comment

 
Picture
Maðurinn minn sá um eldamennskuna um daginn og gerði þennan frábæra rétt sem hann fékk uppskrift af hjá góðu fólki.  
 
  • 3 -4 kjúklingabringur, skornar í smáa bita
  • 8-10 hvítlauksgeyrar saxaðir smátt
  • 1/2 rauður chili eða eftir smekk, saxað smátt
  • 1 tsk hrásykur 
  • maldon salt 
  • nýmulin pipar 
  • 1 dós kókosmjólk 
  • belgbaunir eftir smekk 

Hvítlaukur og chili sett á pönnu og svissað í olíu, kjúklingnum bætt í saltað og piprað og steikt um stund, þá er kókosmjólkinni bætt í og gúmmelaðið er látið malla í 5 mín, þá er baununum bætt í og mallað í 10 mín. 
borið fram með hrísgrjónum, smátt skornu hvítkáli og gúrkum og gott að hafa chili sósu með, virkilega gott og ekki skemmir hvað þetta er einfalt 
​

1 Comment

Pönnusteiktur silungur með sítrónu/hvítvíns sósu

3/14/2017

2 Comments

 
Picture
Við erum svo heppin að eiga vin sem gefur okkur reglulega silung sem ég matreiði á mismunadi hátt, í gær vorum við með hann pönnusteiktann, algert lostæti. 
  • 4 smáir silungar flakaðir 
  • lamb íslandia krydd 
  • maldon salt 
  • lime pipar
  • 1 dl  hvítvín 
  • safi úr einni sítrónu
  • c,a 50 gr smjör. 
  • 2-3 hvítlausrif, söxuð
  • olía til steikingar 

byrjið á því að krydda flökin með salti, pipar og lamb íslandia svo er að steikja flökin á heitri pönnu með roð hliðina upp í 2-3 mín, veltið þá flökunum við og steikið með roðhliðina niður í 3-4 mín takið þá fiskinn af pönnunni og lækið hitann, setið hvítlaukinn á pönnuna og mýkið, þegar laukurinn er mjúkur þá er hvítvín sett út á og sítrónu safi, soðið niður um helming og þá er smjörið sett út á og kraumað saman við þá er komið góð sósa. silungurinn settur út á aftur og hitað smá stund og svo borið fram. Ég bar þetta fram með soðnu grænmeti og krömdum kartöflum krydduðum með sítrónusafa maldon salti og pipar og smá smjöri 



2 Comments

ljúfasta Spelt brauð

3/9/2017

2 Comments

 
Picture
Ég hef gert þó nokkuð af því að baka speltbrauð undanfarið og þetta hefur fengið besta einkunn af okkur heimilisfólkinu sem borðar svona spelt brauð. 
​Gott og einfalt brauð, ég sker það niður þegar það er orðið kalt og set í frysti og þá eigum við ferskt og gott brauð í frystinum :
  • 5 dl spelt
  • 1 dl fjölkorn/sólblómafræ
  • 3 tsk vínsteins lyftiduft
  • 1 tsk salt
Blanda þessi vel saman, og svo kemur 
  • 2 dl ab-mjólk/súrmjólk 
sem þið hrærið saman við þurrefnin og svo er það seinasta
  • 2 dl soðið vatn
hræra eins lítið og þið komist upp með núna, bara næginlega mikið til að blanda saman
setja í smurt brauðform ( gott að strá smá sólblómafræjum í botninn) 
baka við 180 í 30 mín - lengur ef ekki er blástursofn
Þetta er uppskrift af einu brauði - ekkert mál að tvöfalda og baka þá í tveim formum. í staðin fyrir korn má blanda saman við deigið t.d. ólvífum og sólþurkuðum tómötum eða ferskum kryddjurtum. 
2 Comments

ein fyrir 8 ára ömmustrák 

1/10/2017

4 Comments

 
Picture
4 Comments

Ljúfengt pólskt brauð

12/27/2016

2 Comments

 
Picture

Vinur minn frá póllandi kenndi mér að gera þetta brauð fyrir löngu og var það alltaf í uppáhaldi hjá strákunum mínum og reyndar mér líka.  það má vel nota heilhveiti og jafnel fræ blöndu en þá þarf meira ger. 

1 líter vatn 37°c 
2 msk sykur 
c.a 1800 gr hveiti 
1 kúfuð matskeið þurrger 
1 og 1/2 msk salt 
2 msk olía 

setið vatnið í skál og sykur og þá ger í ílát sem tekur amk 5 lítra svo er hluta af hveiti blandað saman við þar til degið verður eins og þykkur grautur, best að nota pískara. látið á hlýjan stað og hefað í 2 klst. 

svo er saltinu bætt í og meira hveiti, þetta er hnoðað upp þar til sleppir hendi þá er olíunni hnoðað saman við og hnoðað vel, þá er örlitlu hveiti hnoðað upp í og látið í ílát og hefað í klukkustund, jafn vel lengur, hafið rakt stykki yfir. 

þá er komið að því að móta degið, Takið degið varlega og mótið það í stórt brauð brjótið bara degið saman og mótið það í fallegt brauð, látið hefast aftur í klukkustund með röku stykki yfir. 

styllið ofninn á 180-200  aðeins áður en brauðið er látið í ofninn, bakað í c,a. klukkustund. ef þið eruð ekki með blástur þá þarf að snúa brauðinu þegar baksturinn er hálfnaður.
þegar brauðið er bakað þá er það tekið úr ofninum og kalt vatn úðað yfir, það gerir fallega og stökka skorpu á brauðið.
​þetta er stórt og mikið brauð sem ég sker í 4 parta og frysti svo þegar ég er búin að nota það sem við ætlum að nota. 
2 Comments
<<Previous

    Archives

    June 2019
    May 2019
    January 2018
    September 2017
    June 2017
    May 2017
    March 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    July 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013

    Categories

    All

    RSS Feed

Proudly powered by Weebly