hér á bæ var ekki gerð hnoðuð lagterta eins og undanfarin ár heldur gerði ég hrærða tertu sem er eftri uppskrift sem mamma hefur notað frá örófi alda og er alltaf góð, já mamma hefur lumað á góðum uppskriftum í gegnum árin. Ég bætti þó við kryddið og gef það upp eins og ég gerði þetta.
hrærið saman smjör og sykur þar til þetta verður létt og ljóst bætið þá við eggjunum einu í einu og hrærið vel, þá eru þurrefnin sett í og hrært saman. Deginu er skipt í 3 hluta og bakað í formum sem eru frekar lítil ég gerði þetta í 20 cm hringformum. Kakan er svo sett saman með smjörkremi.
Smjör krem
Smjörið og flórsykur hrært þar til það verður loftkennt þá er eggjarauðunni bætt í og vaniludropunum
- 250gr smjör
- 250gr sykur
- 200gr hveiti
- 50gr kartöflumjöl
- 3 egg
- 6 tsk kakó
- 2tsk negull
- 1 1/2 tsk kanill
hrærið saman smjör og sykur þar til þetta verður létt og ljóst bætið þá við eggjunum einu í einu og hrærið vel, þá eru þurrefnin sett í og hrært saman. Deginu er skipt í 3 hluta og bakað í formum sem eru frekar lítil ég gerði þetta í 20 cm hringformum. Kakan er svo sett saman með smjörkremi.
Smjör krem
- 250gr smjör (300gr flórsykur) við stofuhita
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vaniludropar