Nú gerði ég þennan ljúfenga fiskrett aftur en breyttir til. Ég snögg steikti fiskinn á heitri pönnu áður en hann fór í ofninn á fékk aðeins stökka húð á hann, svo var hann í ofninum í 10 mínútur,Ég bar þetta fram með nýjum kartöflusmælki og kjúklingabaunasalati. Mér fannst þetta ekki síðra en get ekki gert upp á milli
Hér er uppskriftin eins og hún var upphaflega.
Snyrtið fiskin og skerið í hæfilega bita. Smjörið er brætt með hvítlauknum og sítrónubörknum, þegar smjörið er bráðið þá er sítrónuni bætt í og hrært saman, speltið ( hveitið) er kryddað sem salti og pipar. Fiskstykkjunum er velt upp úr smjörinu og síðan úr speltinu þá er þeim raðað í eldfast mót, þegar öll stykkin eru komin í mótið þá er reiktri papriku stráð yfir og restin af smjörinu sett yfir líka. Sett í 220°c heitan ofn og bakað í 20-30 mín.
Ég bar þetta fram með nýjum kartöflum og Sweet chili salati.

- 1 kg þorskur
- 100gr smjör
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1-2 hvítlauksgeirar saxaðir smátt
- raspaður börkur af hálfri sítrónu ( bara ysta lagið)
- 1 bolli gróft spelt (má vera hveiti í staðin)
- 5 pipar eða annar pipar
- sjávarsalt
- reikt papriku krydd (má vera venjulegt paprikukrydd)