Ég hef alltaf fengið svo góðan Bailys frómas hjá svilkonu minni henni Lauju og langaði að gera þennan frómas fyrir áramótin svo ég fékk auðvitað uppskriftina hennar og gerði frómasinn
- 3 stk egg
- 1,5 dl sykur
- 6 blöð matarlím
- ½ ltr. rjómi
- 0,5 dl Baileys
- 125 gr suðusúkkulaði, saxað
byrjið á Leggja matarlím í bleyti í kalt vatn. Þeytið egg og sykur mjög vel saman og setið sukkulaðið útí hræruna, þeytið síðan rjóman og hafið tilbúin
Baileys er hitað í örbylgjuofni (ca. 20 sekúndur) og matarlímið sett út í (stundum hef ég þurft að hita aðeins í viðbót til að matarlímið leysist betur upp).
hafið þeyttan rjóman tilbúin og geymið til síðast, hrærið Baileys-matarlímið út í eggja- og súkkulaðihræruna með því að hella því í mjórri bunu og hrærið vel í á meðan (til að blandan verði ekki kekkjótt )
ath, ef þú hefur engan til að halda í skálina meðan þú hrærir saman, þá hef ég sett blauta tusku undir skálina, til að hún sé ekki að hreyfast á meðan þessu er hrært saman
Þegar þessu er lokið, hrærið þeytta rjómann saman við – og set í þá skál sem á að bera frómasinn fram í.
Settí kæli, er ca. 2 klst að stífna.
Hindberjasósa
- 200 gr. frosin hindber
- 1 dl. vatn
- 50 gr. sykur ( þeir sem vilja hafa sósuna sætari bæta við eftir smekk)