ég bauð upp á þessar ljúfengu kjötbollur sem pinnamat þegar maðurinn minn átti stór afmæli fyrir 2 árum og hef alltaf ætlað að prófa að hafa þær í matin og hafa þá hrísgrjón með ég gerði bara helminginn af meðfylgjandi uppskrift og eins og mig minnti þá voru þær ljúfengar og gott að borða þær með hvrísgrjónum og salati
(ca. 50 litlar kjötbollur):
Ofn hitaður í 200 gráður. Nautahakkið er sett í skál ásamt kryddi, eggjum, brauðmylsnu, hvítlauki og vorlauki, blandað vel saman. Litlar bollur eru mótaðar úr hakkinu og raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír. Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 10-12 mínútur eða þar til bollurnar eru tilbúnar.
Á meðan bollurnar eru í ofninum er sósan útbúin. Öllum hráefnunum í sósuna er blandað vel saman. Þegar bollurnar eru tilbúnar er þeim velt upp úr sósunni eða henni hellt yfir bollurnar. Græni hlutinn af vorlauknum er saxaður og dreift yfir ásamt sesamfræjum.
(ca. 50 litlar kjötbollur):
- 900 g nautahakk
- 2 tsk sesamolía
- 2.5 dl brauðmylsna
- 1 tsk engifer (krydd)
- salt & pipar
- 2 egg
- 3-4 hvítlauksrif, pressuð eða skorin smátt
- 1 búnt vorlaukur (hvíti hlutinn saxaður smátt – græni hlutinn geymdur)
- 2 dl Hoisin sósa
- 4 msk hrísgrjónaedik (rice vinegar)
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 2 msk sojasósa
- 1 tsk sesamolía
- 1 tsk engifer (krydd)
- Sesam fræ og græni hlutinn af vorlauknum notað til skreytingar.