ég sá þetta á síðu góðri hjá vinkonu minni í Hollandi og varð auðvitað að prófa þennan Mexíkó ofnrétt
fyrir 4 pers
setið grænmetið (ekki tómatana) á pönnu með olíu og léttsteikið kryddið með mexíkó kryddi, bætið þá hakkinu á pönnuna og steikið og saltið og piprið. Setjið tómatana, mais korn og baunirnar á pönnuna ásamt sýrða rjómanum og tómatsósunni smakkið til með meira kryddi eða salti ef þörf er á. Setið nú gúmmelaðið í eldfast mót stingið nokkrum nachos í upp á rönd og svo rifin ost yfir, gott að nota glöndu af gouda og cheddar, skellið í ofninn sem þiðe eruð búin að forhita í 200°c og hitið í 20-30 mín eða þar til osturinn er gullinn. Berið fram með salati og heimalöguðu guacamole, þið finnið góða uppskrift af guacamole inni í sósur og meðlæti
fyrir 4 pers
- 1 laukur saxaður
- 3 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
- 1/2 rautt chili smátt saxað
- 1 rauð paprika söxuð
- 1 græn paprika söxuð
- 2 tómatar saxaðir
- gott mexíkó krydd eftir smekk ( ég átti ekki annað en taco krydd og lét það duga )
- 400gr nautahakk
- 1 (400gr) dós nýrnabaunir
- 1 (400gr) dós svartbaunir
- 125 gr sýrður rjómi
- 150gr maís korn
- 2 kúfaðar matskeiðar góð tómatsósa ég blandaði chili tómatsósu og venjulegri
- nachos flögur með salti
- rifin ostur til að setja yfir
- sjávar salt
- pipar
- ólífu olía til að steikja upp úr
- ég bætti reindar við líka grænum baunum (ekki úr dós) sem ég átti í afgang en það gerði þetta bara betra