BBQ rif sem við vorum með í dag, það er vel hægt að hæg elda rifin í ofni áður en þau eru sett á grillið og þá eru rifin elduð við 120°c í 2 c.a. tíma fer eftir stærð. Annars var þetta svona slump uppskrift.
Ég byrjaði á að þurrkrydda rifin.
- salt
- pipar
- reykt paprika
- cyanne pipar
- hvítlauksduft
lét þetta standa yfir daginn og þetta var svo hæg grillað í ca 2 tíma snúið oft og þá var hitin hækkaður á grillinu og BBQ sósunni sem ég var búin að búa til.
BBQ sósan:
- 1 bolli tómatsósa
- 3/4 bolli púðursykur
- worcestershire sósa
- hvítvíns edik
- chili duft
- tabasko sósa eða sterk chilitómatsósa
- 5 spice
- Reykt paprika
- tómatpúrra
- salt
- dálítið vatn
Hrásalatið (coleslaw)
- 1/2 lítill haus hvítkál rifið eða smátt skorið
- 2 gulrætur rifnar
- 1 msk mayones
- 2 msk sýrður
- 1 tsk dijon sinnep
- hvítvínedik
- salt
- pipar
- safi úr 1/4 af sítrónu
- 1 tsk hunang