Sólþurrkuðu tómatarnir eru lykillinn að ljúfengu bragðinu í þessari yndislegu pastasósu.
Skerið kjúklinginn í litla bita. Saxið sólþurrkuðu tómatana, laukinn, hvítlaukinn og basillaufin.
Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana í um fimm mínútur. Saltið og piprið. Takið af pönnunni og geymið. Steikið laukinn og hvítlaukinn í 2-3 mínútur. Bætið tómötunum út á pönnuna og chili.Bætið víninu á pönnuna, hreinsið upp skófarnar og sjóðið niður um helming.Bætið kjúklingasoðinu út á pönnuna. Leyfið suðu að koma upp. Bætið kjúklingabitunum aftur út á ásamt safa sem hefur lekið af þeim. Hellið rjóma á pönnuna . Hrærið öllu vel saman og látið malla á vægum hita í 7-8 mínútur. þá er basil laufunum bætt í og látið malla í 2-3 mín. sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum.
Blandið pasta og kjúklingasósunni saman í stórri skál og berið strax fram með nýrifnum Parmesan-osti, grænu salati og nýju snittubrauði.
- 7-800gr eða kjúklingabringur
- 1 dós sólþurrkaðir tómatar í olíu
- 2 dl hvítvín
- 1 dl kjúklingasoð
- 1 matreiðslurjómi
- 1 stór laukur
- 3 geirlausir hvítlaukar
- væn lúka af basillaufum
- 1/2 til 1 rautt chili mjög smátt saxað (fer eftir hvað þið viljið sterkan mat), ég vil bara að þetta bítið aðeins í svo ég notaði 1/2) eða ca 1 tsk chili explotion
- 500 g pasta, t.d. Penne