Maðurinn minn sá um eldamennskuna um daginn og gerði þennan frábæra rétt sem hann fékk uppskrift af hjá góðu fólki.
Hvítlaukur og chili sett á pönnu og svissað í olíu, kjúklingnum bætt í saltað og piprað og steikt um stund, þá er kókosmjólkinni bætt í og gúmmelaðið er látið malla í 5 mín, þá er baununum bætt í og mallað í 10 mín.
borið fram með hrísgrjónum, smátt skornu hvítkáli og gúrkum og gott að hafa chili sósu með, virkilega gott og ekki skemmir hvað þetta er einfalt
- 3 -4 kjúklingabringur, skornar í smáa bita
- 8-10 hvítlauksgeyrar saxaðir smátt
- 1/2 rauður chili eða eftir smekk, saxað smátt
- 1 tsk hrásykur
- maldon salt
- nýmulin pipar
- 1 dós kókosmjólk
- belgbaunir eftir smekk