2 kjúklingabringur, skornar í litla bita
3 hvítlausrif, smátt söxuð
1 laukur, saxaður
2 tómatar. saxaðir
1 dós tómatar,
150-200 gr spínat, gróft saxað
100gr Philadelphia rjómaostur
200 gr pasta skrúfur eða annað pasta, soðið
100 gr rifin ostur, ég notaði pizza blöndu frá ms
1/2 bolli rifin parmessan
sjávar salt
svartur pipar
góð lúka ferskt basil, saxað eða rúm tsk þurkað
kjúklingurinn saltaður og pipraður, steiktur á pönnu í olíu og settur til hliðar. Laukurinn settur á pönnu og mýktur í olíu bætið við tómötum salti og pipar (og basil ef þið notið þurkað) og síðan rjómaostinum hrærið vel saman og látið malla í nokkrar mínútur bætið þá kjúklingnum saman við og soðnu pastanu því næst er spínatinu hrært saman við og látið malla 2-3 mín því næst er basil sett saman við, smakkið til með salti og pipar. Setið í eldfast mót og ostinn yfir. Eldið í ofni við 220°c þar til osturinn er gullinn. Ég setti bara ost yfir þetta á pönnunni og setti í ofn, það er hægt ef pönnurnar þola að fara í ofn. Með þessu hafði ég hvítlauksbrauð og ferskt salat og raspaði parmessan yfir.