þessi smáköku uppskrift kemur úr gamalli bók frá mömmu minni og voru alltaf bakaðar á mínu heimili þegar ég val lítil stelpa, ég hef ekki gert þær í nokkur ár en ákvað að skella í eina uppskrift en mundi að eitthvað hafði mér alltaf fundist vanta og bætt því við c.a 1/2 tsk af salti og skipti út smjörlíki og notaði smjör í staðin. Ég fann að saltið er lykilatriði og ekki skemmir að þetta er mjög auðvelt.
Súkkulaði stangir
- 425 gr smjör
- 640 gr hveiti
- 425 gr sykur
- 4 msk kakó
- 2 egg
- 2 msk vaniludropar
- 1/2 tsk salt
- saxaðar möndlur til að skreyta með
Öllu hnoðað saman og rúllað upp í lengjur á þykkt við litla fingur svo eru lengjurnar ská skornar í bita svo dýfir maður annari hliðinni í egg sem er búið að píska saman og svo í möndlur sem eru blandaðar með sykri, það er auðvitað smekks atriði hversu mikið á að vera ofan á hverri köku. Þetta er bakað við 180-200°c hjá mér var það c.a. 15mín eða auðvitað er þetta misjafnt eftir öfnum