kvöldmaturinn í kvöld var einstaklega vel heppnaður enda bara eintóm hollusta. kjúklingurinn sem var 1250gr áður en hann var eldaður dugar fyrir 3 manneskjur.
- 1 heill kjúklingur
- 10 litlar rauðar kartöflur ( skornar á helming)
- 2 hvítlauks rif (söxuð)
- 2-3 skarlot laukar ( gróft skornir)
- salt
- piri piri krydd ( eða annað sem ykkur langar í )
- paprikuduft
- 1 kartafla afhýdd og skorin í bita
- 3-4 gulrætur hreinsaðar og skornar í bita
- 1 appelsína skorin í bita
- 3 dl kjúklingsoð ( má vera teningur og vatn)
Ég bar fram með þessu mais korn og útbjó sósu úr soðinu sem ég bragðbætti með kjúklingakrafti og salti og bætti útí matreiðslurjóma. fyrir sumar var sósan punkturinn yfir i-ið en perósnulega vildi ég frekar soðið úr fatinu yfir, mjög gott að borða smávegis af appelsínunni með þessu.
ATH: eldunar tími fer alltaf eftir stærð, sá sem ég eldaði þarna var 1100gr og náði hann að eldast í gegn á 50 mínútum en annars þegar maður er með kjukling ber alltaf að hafa varan á og ef fólk er ekki með hitamæli í kjötinu er einfalt að skera í kjötið þar sem það er þykkast og skoða hvort það sé eldað