- 3 kjúklingabringur skornar í 2-3 sneiðar efir endilöngu á breiðari kantinn, fer eftir stærð á bringum
- c.a 1/2 bolli brauðrasp
- 1/4 bolli parmesan ostur (rifin og skipt í 2 parta )
- 1 egg ( eða 2 eggjahvítur ) pískað saman
- 200gr spínat fínt skorið
- 1 mossarella kúla 150gr
- 3 msk ricotta ostur ( má sleppa og nota eitthvað annað)
- ólífuolía til að smyrja formið
- rúmlega1 bolli ( uppáhalds pizza eða spaghetti sósan ykkur ) eða búið til ykkar eigin, ég gerði mín eigin.
- Ítölsk krydd að eigin vali, ferkst er best t.d timian, rosmarin ef ekki er notað ferskt má jafnvel nota lamb islandia frá pottagöldrum
- salt og pipar
Byrjið á því að fletja aðeins út kjúklingasneiðarnar með flötum kjöthamri eða setið plast undir og ofan á og fletið með höndum. Hitið ofninn í 200°c
Blandið saman í skál brauðraspi og öðrum helmingnum af parmessan ostinum og í aðra skál egginu.
Skerið niður og setið í sér skál hálfa mossarella kúlu og setið saman við restina af parmessan ostinum ásamt c.a. 2 msk af eggi, ricotta osti og spínati, blandið vel saman.
Leggið kjúklinga sneið á disk, létt saltið og piprið, smyrjið c.a. 2 msk af osta-spínat blöndunni og rúllið síðan upp, veltið síðan rúlluni varlega i eggi og svo upp úr rasp/osta blöndunni leggið svo í eldfast mót sem búið er að smyrja með olíu og hafið saumhliðina niður, þá er óþarfi að pinna þetta saman. bakið í 25 mínútur og takið út úr ofninum og setið sósu yfir hverja rúllu og skiptið restinni af mossarella ostinum yfir og notið einhverja góða tegund af rifnum osti með eða setið meira af mossarella allt eftir hvað hugurinn girnist
Pizza sósa
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 2 msk púrré
- 1 tsk timian
- 1 tsk hunang
- maldon salt eftir smekk
- c.a.1/2 tsk svartu nýmalaður pipar
- 1/2 laukur. smátt saxaður
- 1 hvítlauksrif
- 3 msk olía.
- handfylli basillauf smátt skorin eða 1 tsk þurkað basil
eins og sést á neðri myndinni þá setti ég þetta í full lítið mót og ég setti afgangin af spínat/osta blöndunni líka með i mótið þannig að þetta myndast ekki of vel hér .
Ég bar þetta fram með soðnum hrísgrjónum og einföldu salati en það er örugglega líka gott að hafa pasta með þessu