Það er löngu komin tími á þennan góða fiskrétt hér á heimilinu, hefur ekki verið gerður í óratíma.
það má nota hvort heldur sem er ýsu eða þorsk í þennan góða fiskrétt, innihaldið getur verið orlítið breitilegt en í dag var hann svona og er bara að fara í ofninn .
smá af olíuni sem er í sólþurkuðu tómötunum smurt í eldfast mót, fiskurinn hreinsaður og skorin í bita og raðað í mótið kryddað með salti og pipar. laukurinn og tómatar skorið niður og fetaosturinn er létt stappaður og blandað saman við tómatana og laukinn. blöndunni er dreift yfir fiskinn og mótið sett í ofn og bakað við 200°c í 20-30 mín eða þar til fiskurinn er tilbúin. ég bar þetta fram með nýjum kartöflum og grænu salati

- 800gr þorskur
- 1 bolli blaðlaukur, skorin
- 1/2 krukka sólþurkaðir tómatar, saxaðir
- 2 hvítlaukgeirar smátt saxaðir
- 2 vel þroskaðir tómatar
- 2/3 krukka fetaostur í olíu
- 5 pipar blanda
- fersk basilika ef þið eigið annars 1 tsk þurkuð
- sjávarsalt