í kvold var ég með Carbonapasta, gerði reindar líka ferskt pasta og gerði Focaccia brauðið sem ég hef gert svo oft nema ég breytti að eins í sambandi við gerið ég notaði þurrger 1, 1/2 tsk en ekki pressuger og lengdi þá hefingartíman um 30 mín. þetta heppnaðist frábærlega og ég held bara að þetta hafi verið besta Focacciabrauð sem ég hef smakkað
set hér upprunalegu uppskrfitina með pressugerinu sem er líka inní brauðdálkinum hér til hliðar
uppskrift frá Jóa Fel, heppanst alltaf rosalega vel, vinsælasta matarbrauðið á mínu heimili
450 g hveiti
70 g semolinohveiti
15 g pressuger
10 g salt
50 g ólífuolía
320 g vatn
setjið saman hveiti og semolina, brjótið gerið saman við með fingrunum. Setjið vatn og olíu út í ásamt saltinu. Vinnið deigið rólega saman í 2 mín., vinnið svo deigið á miðjuhraða í ca. 6–7 mín. Deigið á að vera svolítið klístrað. Sláið deiginu upp í kúlu og látið það standa undir rökum klút í 60 mín.
setjið deigið á plötu eftir 1 klst. í hefingu. Fletjið deigið út með höndunum en gætið þess að lemja það ekki
mikið niður. Reynið að hafa deigið jafn þykkt á plötunni. Penslið vel með ólífuolíu yfir deigið, setjið maldonsalt yfir og ferskt rósmarin. Setjið
mikið af puttaförum í deigið. Setjið deigið inn í 250°C heitan ofninn, úðið vatni
um leið og deigið er sett inn í ofninn, lækkið hitann niður í 230°C og bakið í um 13–15 mín.
Bakið þar til brauðið er gullið að lit.