í dag bjó ég til ricotta ost því hann er ekki auðvelt að fá í búðum og ég hef heyrt að hann sé mikið betri heimagerður en keyptur, ég hafði fyrirhugað að prófa nýjan rétt sem þarf ricotta ost í og tilvalið að gera sinn eigin heimagerða ost í réttinn, sem ég set inn síðar.
Ekta ricotta er gerður úr mysunni sem fellur til úr annarri ostagerð en orðið ricotta þýðir í raun "endursoðin", mysan er hituð aftur upp til að ná öllum mögulegum ostefnum úr henni sem hugsanlega geta setið eftir en þetta er gert til þess að nýta mjólkina til hins ýtrasta. Heimagerður ricotta er hinsvegar oftast gerður með nýmjólk
Það er hægt að sýra mjólkina með öðru en ediki, svo sem sítrónusafa eða súrmjólk, en hvort tveggja gefur ostinum þá mjög einkennandi bragð sem getur verið mjög gott. það er hægt að skipta út hluta af mjólkinni fyrir rjóma til að gera feitari ost ef fólk kýs það.
Heimagerður ricotta er fulkominn fyrir þá sem vilja byrja á að fikra sig áfram í ostagerð því hann er einfaldur og tekur enga stund að laga.
Setjið sigti í skál, leggið sótthreinsaðan grisjuklút ofan í og flytjið ostinn yfir í klútinn með gataspaða. Stráið ½ teskeið af salti yfir ostinn og veltið honum rólega um. Leggið horn klútsins yfir ostinn til að hylja hann og leyfið mysunni að leka af honum í um 5 mínútur, eða lengur ef óskað er eftir þurrari osti.
Ég tók smávegis af ostinum og bragðbætti með saxaðri steinselju, salti og hvítlausdutfi og hafði ofan á glænýtt hrökk kex
Osturinn geymist í ísskáp í um viku en er bestur nýlagaður.
þetta magn gerir um 200 gr af osti

- 1 líter nýmjólk
- 2 msk 5% borðedik
- 1/2 teskeið salt