- 250-300gr kjúklingabaunir án safa ef þið notið úr dós
- 2 hvítlauksrif pressuð
- 2 matskeiðar tahini ( sesam mauk )
- rifin börkur af 1/2 sítrónu
- sírtónusafi eftir smekk ( ég notaði úr heilli lítilli sítrónu)
- cayenne pipar á hnífsoddi
- 1-2 tsk cummin duft
- 1 tsk rifið engifer
- salt eftir smekk
- vatn til að þynna ef þarf
allt nema krydd er sett í matvinnsluvél og mauka vel þá er kryddinu bætt í og hrært vel saman þar til maukið er slett og fín smakkið til og finnið út hvað ykkur líkar, það er vel hægt að setja sólþurkaða tómata eða kryddjurtir