það átti nú að vera allt annað gert úr þessum bringum en bragðlaukarnir tóku U beigu og skiptu um stefnu og úr varð þetta, ekki verra þegar óvænta gesti ber að garði að vera með góðan mat á pönnunni
Steikið laukinn, sólþurkuðu tómatana og grænmetið og takið til hliðar og geymið, steikið síðan kjúklinginn á pönnunni og kryddið. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er grænmetinu bætt út á og steikt um stund svo er hvítvín sett út í og soðið niður í um 5 mínutur þá er rjómanum hellt út á og látið malla um stund, smakkað til með salti og pipar og kjúklingakraft ég notaði eina c.a 1tsk af Tasty krafti .
Ég bar þetta fram með hýðishrísgrjónum og salati.
Það sem ég gerði var að nota það sem til var í ísskápnum þvi það er um að gera að nota það sem er til hverju sinni. Ég held að þetta færi líka voðalega vel með pasta í stað hrísgjóna.
- 800gr kjúklingabringur, skorin að vild
- 1 krukka sólþurkaðir tómatar skornir að vild
- 1 rauð paprika, söxuð
- 1 græn paprika, söxuð
- 1 skarlot laukur
- 1/2 meðalstór haus brokkoli, skorin
- 2 dl hvítvín
- 3 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
- 1 matreiðslu rjómi
- salt og svartur pipar
- kjúklingakraftur eftir smekk