Gott og einfalt brauð, ég sker það niður þegar það er orðið kalt og set í frysti og þá eigum við ferskt og gott brauð í frystinum :
- 5 dl spelt
- 1 dl fjölkorn/sólblómafræ
- 3 tsk vínsteins lyftiduft
- 1 tsk salt
- 2 dl ab-mjólk/súrmjólk
- 2 dl soðið vatn
setja í smurt brauðform ( gott að strá smá sólblómafræjum í botninn)
baka við 180 í 30 mín - lengur ef ekki er blástursofn
Þetta er uppskrift af einu brauði - ekkert mál að tvöfalda og baka þá í tveim formum. í staðin fyrir korn má blanda saman við deigið t.d. ólvífum og sólþurkuðum tómötum eða ferskum kryddjurtum.