Fennel hefur gott bragð, sem minnir svolítið á anís, og er jurtin og krydd af henni vinsæl í ítalskri matargerð.
Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna, setjið lokið á og látið malla í þrjár til fjórar mínútur. Takið af pönnunni og geymið.
Bætið við olíu á pönnuna og steikið kjúklingabitana og um matskeið af fersku rósmarín. Saltið og piprið. Þegar kjúklingurinn er fulleldaður er hvítlauknum bætt út í og steiktur með í um hálfa mínútu. Bætið loks fennikkunni og vökvanum saman við. Leyfið að malla í nokkrar mínútur. Slökvið á hitanum og bætið steinseljunni saman við.
Berið fram með hrísgrjónum soðnum í kjúklingasoði (ein teskeið af krafti út í vatnið og rósmarín grein ).
- 4 kjúklingabringur, skornar í 3 bita hver
- 3 fennelbelgir, hreinsið utan af og skerið í grófa bita
- 3 stönglar ferskt rósmarín, saxað
- 1 steinseljubúnt
- 3-4 hvítlauksgeirar
- 3 dl kjúklingasoð
- Salt og pipar