- 1 kg. hveiti
- 500 gr. smjörlíki
- 400 gr. sykur
- 200 gr. síróp
- 3-4 egg (eftir stærð)
- 2 tsk. kanill
- 2 tsk. kakó
- 2 tsk. hjartarsalt
- 2 tsk. allrahanda
- 2 tsk. negull
- 2 tsk. engifer
- 6 tsk. lyftiduft
Öllu hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafnstóra hluta. Deigið flatt þunnt út í ferhyrndar kökur, ég mældi þetta út með relgustiku til þess að sem minnst færi í afskurð og mín mæling var 27,5x 32 cm . Bakað þar til fallega brúnt, í svona 5-10 mínútur fer eftir ofnum.
Kökuplöturnar síðan lagðar saman með smjörkremi á milli, fallegasta platan efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða álpappír og látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í 6-8 stykki og hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera loftþéttar svo kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti.