Hulk Afmæliskaka var á óskalistanum og amma varð auðvitað við þeirri beiðni
0 Comments
þessi máltíð heppnaðist virkilega vel og ég mun örugglega gera svona aftur við tækifæri
Sveppafylling
Í þessum rétti er oftast eingöngu besti bitinn úr lundinni nendarnir eru skornir frá og notaðir í eitthvað annað en þar sem ég var með 1 stóra lund og vildi prófa mig áfram þá tók ég besta bitann í eina steik og svindlaði aðein sem hinn og hlutan braut ég undir þynnsta endan áður en ég steikti og það kom bara vel út . Lundin er brúnuð í smjöri á heitri pönnu, krydduð og síðan sett til hliðar. Skerið sveppina og laukinn smátt. Steikið í smjöri og hrærið á meðan steikingin fer fram. setjið vínið á pönnuna og sjóðið niður, Bætið steinselju saman við. Bragðbætið með salti og pipar. leggið plastfilmu á borð og leggið hráskinku sneiðar á hana og smyrjið þar yfir sveppablönduni leggið síðan kjötið á þetta og pakkið inn og geymið í ískáp í 1-2 klst Leggið smjördeigið á borð og fletjið það út. Plöturnar eiga að límast saman með léttþeyttu eggi. Leggið Pakkið kjötinu inn í smjördeigið, leggið á smjörpappír á bökunarplötu og látið "sauminn" snúa niður. Notið afskurð af deiginu til að búa til skraut ofan á. Penslið allt með léttþeyttu egginu og geymið á köldum stað þar til kjötið fer í ofninn. Þetta má gera degi fyrir notkun. Setjið kjötið í 200°C heitan ofn í 20 mínútur. Kjötið á að elda þar til kjöthitamælirinn sýnir 57°C. , Ég hef alltaf fengið svo góðan Bailys frómas hjá svilkonu minni henni Lauju og langaði að gera þennan frómas fyrir áramótin svo ég fékk auðvitað uppskriftina hennar og gerði frómasinn, ég læt athugasemdirnar frá Lauju með.
byrjið á Leggja matarlím í bleyti í kalt vatn. Þeytið egg og sykur mjög vel saman og setið sukkulaðið útí hræruna, þeytið síðan rjóman og hafið tilbúin Baileys er hitað í örbylgjuofni (ca. 20 sekúndur) og matarlímið sett út í (stundum hef ég þurft að hita aðeins í viðbót til að matarlímið leysist betur upp). hafið þeyttan rjóman tilbúin og geymið til síðast, hrærið Baileys-matarlímið út í eggja- og súkkulaðihræruna með því að hella því í mjórri bunu og hrærið vel í á meðan (til að blandan verði ekki kekkjótt ) ath, ef þú hefur engan til að halda í skálina meðan þú hrærir saman, þá hef ég sett blauta tusku undir skálina, til að hún sé ekki að hreyfast á meðan þessu er hrært saman Þegar þessu er lokið, hrærið þeytta rjómann saman við – og setja skál sem á að bera frómasinn fram í eða líka smart að setja í litlar desertskálar. Sett í kæli, er ca. 2 klst að stífna. ég bar hann fram með hindberjasósu og rjóma Hindberjasósa
þessi skammtur sem ég eldaði dugar fyrir 3
risotto :
Olía er hituð og risotto er velt vel uppúr olíunni í nokkrar mín eða þar til fer að smella í grónunum . Þá er hvítvínið sett saman við og látið sjóða nær alveg niður. Þá er soðið sett saman við smátt og smátt, hrærið vel í á meðan. Sjóðið risottóið í 15-20 mín (fer eftir grjónum), það á að vera stökkt undir tönn og þunnt eins og góður grjónagrautur smakkið til og bætið salti ef þarf en munið að parmesan osturinn er vel saltur. þegar þetta er tilbúið þá setjið handfylli af rifnum parmesan og smá klípu af smjöri saman við, hrærið þar til allt er komið vel saman. Fiskur :
Á meðan verið er að gera risotto er fiskurinn gerður. Setjið vel af olíu á pönnu og setjið hvítlaukinn í olíuna látið malla í smá tíma án þess að brenna hvítlaukinn. Setjið fiskinn í heita olíuna og kryddið . Steikið í c.a 2 mín á hvorri hlið, setjið fullt af feskri salvíu á fiskinn og í olíuna og setjið inní c.a 200° heitann ofninn í c.a 5-7 mín. Setjið risotto á disk og fiskinn þar yfir, setjið smá olíu af pönnunni yfir ásamt góðri ólífuoíu og dass af parmesan af vill. ef ég hefði átt Cheddar ost í ískapnum hefði ég notað álíka magn af honum líka, það hefði líklega verið mjög gott líka dáldið ánægð með árangurinn í sykurmassa tertugerð, gerði þessa handa dóttir okkar fyrir útskriftna hennar, stærri myndir finnið þið ef þið farið inn í sykurmassa skreytingarnar mína hér til vinstri og klikkið á myndirnar
Ég átti í fórum mínum uppskrift af Beileys konfekti sem ég endur hannaði og útkoman er ofur ljúf. það er hægt að nota það súkkulaði sem mann langar til, ég notaði Sirius konsum orange að þessu sinni og tempraði það til að ná sem bestum árangri.
ég notaði hrærivélina til að hjálpa mér en það er ekki nauðsynlegt. Byrjið á að blanda vinna saman núggatið og marsipanið, síðan er Beileys sett út í og unnið saman þá er flórsykrinum blandað saman við er gætið þess að þetta verði hæfilega þett að sýðustu setti ég helmingin af heslihnetunum saman við rúmlega helmingin af massanum og þá er maður komin með 2 gerðir, ég notaði svo minni endan á kúluskeið ( sést á mynd fyrir neðan) til að hjálpa mér að ákveða stærðina á molunum ekki nauðsyn samt, og notið endilega latex eða plast hanska til að losna við að verða klístrug, þegar búið er að búa til kúlurnar eru þær hjúpaðar með súkkulaði og skreyttar ef fólk vill. Ég skreytti með heslihnetum þá mola sem voru með hnetum og skreytti svo hina með skrautsykri og suma með hvítu súkkulaði sem ég litaði örlítið með dökku súkkulaði. næst mun ég örugglega setja heslihneturnar bara saman við allt því molarnir eru svo mikið betri þannig. 1 kg. hveiti
500 gr. smjör 400 gr. sykur 200 gr. síróp 2-3 egg, eftir stærð, 3. tsk. kanill 4 tsk. kakó 2 tsk. hjartarsalt 3. tsk. negull 2 tsk. engifer 6 tsk. lyftiduft Öllu hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafnstóra hluta. Deigið flatt þunnt út í ferhyrndar kökur næstum því eins stórar og bökunarplatan. Bakað þar til fallega brúnt, í svona 5-10 mínútur á að giska. Kökuplöturnar síðan lagðar saman með smjörkremi á milli, fallegasta platan efst. Lagkökunni síðan pakkað vel inn í eldhúsfilmu eða álpappír og látin bíða í 2-3 daga til að mýkjast. Þá er hún skorin í 6-8 stykki og hverju stykki pakkað vel inn, umbúðirnar þurfa að vera loftþéttar svo kakan harðni ekki. Geymist vel í frysti. Aths. ég flet plöturnar út til hálfs, set þær síðan á bökunarpappírinn á bökunarplötunni og klára þannig að fletja út hverja plötu fyrir sig. Þegar kökuplöturnar eru bakaðar renni ég þeim varlega yfir á kalda bökunarplötu eða á stórt skurðbretti. Ég reyni að mæla c.a. hverja plötu fyrir sig til að ég geti haft þær allar jafn stórar áður en þær eru bakaðar, þessi smáköku uppskrift kemur úr gamalli bók frá mömmu minni og voru alltaf bakaðar á mínu heimili þegar ég val lítil stelpa, ég hef ekki gert þær í nokkur ár en ákvað að skella í eina uppskrift en mundi að eitthvað hafði mér alltaf fundist vanta og bætt því við c.a 1/2 tsk af salti og skipti út smjörlíki og notaði smjör í staðin. Ég fann að saltið er lykilatriði og ekki skemmir að þetta er mjög auðvelt. Súkkulaði stangir
Öllu hnoðað saman og rúllað upp í lengjur á þykkt við litla fingur svo eru lengjurnar ská skornar í bita svo dýfir maður annari hliðinni í egg sem er búið að píska saman og svo í möndlur sem eru blandaðar með sykri, það er auðvitað smekks atriði hversu mikið á að vera ofan á hverri köku. Þetta er bakað við 180-200°c hjá mér var það c.a. 15mín eða auðvitað er þetta misjafnt eftir öfnum Létt í kvöld, átti afgang af fylltum kalkúnalundum í ískápnum svo ég ákvað að búa til eitthvað úr því og útkoman var ljúffengt spariklædd brauðsneið.
Bauðsneiðar sem ég tók úr frystinum voru ristaðar og svo nuddaðar með hvítlauk svo tók ég góða spari extra virgin ólífuolíu og dreypti aðeisn á sneiðina, þar ofan á salat svo raðaði ég niðurskornum sneiðum af kalkún, gúrku og harðsoðnu eggi, svo setti ég ceasar salad dressingu svona aðeins á milli og dáltið ofan á, að lokum setti ég sjávarsalt og nýmulin svartan pipar. Ofur gott hafði egg og bacon í hádeginu, þetta er í raun auðvelt
smyrja múffuform bacon sem búið er að steikja aðeins bara ekki gera það stökkt, leggið svo á pappír til að fá fituna úr, Leggið beikon í múffuform þannig það þeki botnin, bjótið eggið í holuna, ég setti smá lamb íslandia krydd og rifin cheddar yfir en það má nota það sem manni finnst gott bara, svo bar ég þetta fram með salati rosa gott |
Archives
June 2019
Categories |
- Blog
- Allar uppskriftir
- Forréttir
-
Kjöt og kjötréttir
- Beikon hjúpaður hakkréttur í ofni
- Indónesískar Kjötbollur
- Geggjaður mexíkóskur ofnréttur
- BBQ svínarif og hrásalat (coleslaw)
- Úr afgangskjöti má gera dýrindis máltíð
- Innbökuð nautalund eða beef wellington á áramótum
- Beikonvafðar fylltar svínalundir
- Klikkaður grillaður gráðosta borgari með beikoni og ananas
- Marinerað og grillað lambalæri
- Spænskar kjötbollur í tómatsósu
- Nautasteik
- Basic en góðar kjötbollur
- Chili con carne
- Indverskir réttir
-
kjúklinga réttir og annað fuglakjöt
- Hasselback kjúklingur með ricotta osti
- Eldfast mót fullt af hollustu
- Ljúfur Fennel Kjuklingur
- Kjúklingalæri marineruð í appelsínu og five spice
- Góð marinering fyrir kjúkling
- Fyllt kalkúnalund með sveppasósu
- Kjúklingapottréttur
- Risotto með kjúkling og chorizo
- Fáranlega góðar kjúklingarúllur með spínat og parmessan fyllingu
- Piri piri, grillaður kjúklingur
- Afgangurinn af Piri piri kjúklingnum varð að ljúfengri máltíð
- Kjúklingur á pönnu með sólþurkuðum og hvítlauk
- Kjúklinga vorrúllur
- Grilluð kjúklingaspjót með satay sósu, hrísgrónum og sweet chili salati
- Chili/hvítlauks kjúklingabringur
- Fyllt kalkúnabringa með parmaskinku og sólþurkuðum tómötum
- Grillaðar kalkúnasneiðar, sætar kartöflur og kúrbítur
- Líbanskur kjúklingur
- Hunagsristuð önd
- Piri Piri kjúklingur
- Kjúklingur í ofni með Expresso rub
- fyllt Kalkúnabringa
-
pastaréttir
- Tortellini með piparosti og spergilkáli
- Kjúklingapasta sem klikkar ekki
- Heimagert Ravioli með kjötfyllingu
- Kjúklingapasta í ofni
- Rugl gott pasta með kjúkling, aspas og rjómaosti
- Kjötsósan góða fyrir spaghetti
- kjúklingur og spelt tagliatelle
- Ferskt spelt pasta
- Ferskt pasta
- Carbonara pasta með beikon og grænum baunum
- Lasagna að mínum hætti
- Sítrónupasta með skinku.
-
Fiskréttir
- Fiskur í ofni með sólþurkuðum og feta
- Smálúða á osta risotto beði
- Ofnbakaður lax me five spice
- Sítrónu þorskur í ofni
- Mín útgáfa af plokkfisk
- Þorskur með parmaskinku og cheddarosti
- Pönnusteiktur lax með bankabyggi og salati
- Fiskur með kókos og engifer
- Þorskur á spínatbeði
- góðar Fiskibollur
- Rauðspretturúllur með sólþurkuðum tómötum
- Fiskur með AB Mjólk og pestó
- Fiskur með aspas og fl bakað í ofni .
- Saltfiskur á miðjarðarhafsvísu
-
sósur og meðlæti
- Bökuð kartöflu mús með bacon
- Einfalt kartöflugratin
- Grillað mais á stöngli
- Tómatsallat með mozzarella
- Góð sveppasósa
- Sweet chili salat
- Dýrindis kjúklingabauna salat
- Koníakssósa
- Chimichurri
- Steikt bankabygg með hvítlauk
- bernaise sósa
- Rauðvínssósa með steikinni
- Köld hvítlaukssósa
- Sósa fyrir kalkún
- Guacamole
- Sætkartöflumús
- hvítkálsalat
- Smjörsteiktur Aspas
- Rauðkál
- Austurlönd
- Súpur
- Brauðréttir og Brauð
-
kökur og kaffibrauð
- Sýrópskökur ( piparkökur)
- Alger Blúnda
- Hnoðuð lagterta, ( randalín )
- Þjóðhátíða snúðar og vínarbrauð
- Dásamlega góðar súkkulaðistangir
- Súkkulaði skúffukaka
- Súkkulaðibita kaka Erlu
- Lagterta (hrærð)
- Kókos toppar
- Bananabrauð
- Rabbabara pæ
- Súkkulaðibita muffins
- Spelt skonsur
- Kleinur
- Gömul en góð uppskrift af Vatnsdeigs bollum
- Tertur
- Kokosbollu terta
- sörur
- Súkkulaðibitakökurnar hennar ömmu
- Eftirréttir
- Heilsuréttir og hollusta
- Ýmislegt
- köku skreytingarnar mínar
- Um mig