2 dl góð extra virgin ólífuolía
2-3 stór hvítlauks rif pressuð
smá sjávarsalt
smá fersk steinselja ( sem ég set ef ég á hana til.
þessu er bara blandað saman og látið standa helst í sólarhring fyrir notkun en 2-4 klst dugar alveg
Ljúft í munn og maga |
|
Ég gerði pizzu í gær sem hefur verið í uppáhaldi hjá flestum í fjölskyldunni og gerði hér uppdate af uppskriftinni minni en eitt af lykilatriðum fyrir góða er góð hvítlauksolía sem er auðvitað best heimagerð og auðvelt að gera, hér er mín útgáfa.
2 dl góð extra virgin ólífuolía 2-3 stór hvítlauks rif pressuð smá sjávarsalt smá fersk steinselja ( sem ég set ef ég á hana til. þessu er bara blandað saman og látið standa helst í sólarhring fyrir notkun en 2-4 klst dugar alveg
0 Comments
Það er til urmull af kanelsnúða og vínarbrauðs uppskriftum, hér er sú sem ég hef notað hvað mest í gegnum árin og kemur hún frá fyrrverandi dengdó minni sem mér þykir líka endalaust vænt um, ég veit nú ekki hvernig nafnið er komið til en ég held því bara eins og það var hjá henni.
ég geri venjulega 2 uppskriftir. Þetta er bara venjulegt hnoðað deig ég skipti deginu svo í tvennt og geri vínarbrauð með rabbabara sultu úr öðrum helmingnum og kanilsnúða úr hinum helmingnum ég pensla bræddu smjöri á útflatt degið áður en ég set kanilsykurinn á snúðana en það er ekki nauðsynlegt mér finnst það bara betra og fallegra. svo er það undir hverjum og einum komið hvort sett er súkkulaði glassúr eða bleikur glassúr á vínarbrauðið og snúðana, persónulega við ég snúðana ekki með glassúr en flestir á mínum bæ eru ekki á sama máli og vilja glassúrinn á bæði. Ég set glassúr á smávegis en set restina í frysti því mér finnst gott að eiga þessa snúða og vínarbrauð alltaf nýtt úr frystinum það geymist best þannig. Nú er það Hasselback kjúklingur með ricotta osti sem ég ætlaði að prófa. Ég bjó til ricotta ost í gær en hann má auðvitað gera samdægurs ef maður vill.
En allavega er þessi snilldar kjúklinga uppskrift hér og ekki skemmir hversu auðveld hún er. þetta er fyrir 4
Hitið ofninn í 200°c. Byrjið á að setja smá olífu olíu á pönnu og skellið öllu spínatinu út á kryddið með öllu nema paprikunni og veltið um í 3-5 mínútur og setið þá ricotta ostinn saman við á pönnunni vinnið saman í um 30-60 sec smakkið til með kryddiog kælið síðan aðeins . skerið raufar í bringurnar með c.a, 1cm millibili og passið að skera ekki niður í gegn, fyllið í raufarnar með osta spínat blöndunni saltið og piprið yfir og setið í eldfast mót og setið rifin cheddar ost yfir allar bringurnar og paprikukryddið yfir ostinn setið í ofninn í 25-30 mín eftir stærð á bringunum. í dag bjó ég til ricotta ost því hann er ekki auðvelt að fá í búðum og ég hef heyrt að hann sé mikið betri heimagerður en keyptur, ég hafði fyrirhugað að prófa nýjan rétt sem þarf ricotta ost í og tilvalið að gera sinn eigin heimagerða ost í réttinn, sem ég set inn síðar.
Ekta ricotta er gerður úr mysunni sem fellur til úr annarri ostagerð en orðið ricotta þýðir í raun "endursoðin", mysan er hituð aftur upp til að ná öllum mögulegum ostefnum úr henni sem hugsanlega geta setið eftir en þetta er gert til þess að nýta mjólkina til hins ýtrasta. Heimagerður ricotta er hinsvegar oftast gerður með nýmjólk Það er hægt að sýra mjólkina með öðru en ediki, svo sem sítrónusafa eða súrmjólk, en hvort tveggja gefur ostinum þá mjög einkennandi bragð sem getur verið mjög gott. það er hægt að skipta út hluta af mjólkinni fyrir rjóma til að gera feitari ost ef fólk kýs það. Heimagerður ricotta er fulkominn fyrir þá sem vilja byrja á að fikra sig áfram í ostagerð því hann er einfaldur og tekur enga stund að laga.
Setjið sigti í skál, leggið sótthreinsaðan grisjuklút ofan í og flytjið ostinn yfir í klútinn með gataspaða. Stráið ½ teskeið af salti yfir ostinn og veltið honum rólega um. Leggið horn klútsins yfir ostinn til að hylja hann og leyfið mysunni að leka af honum í um 5 mínútur, eða lengur ef óskað er eftir þurrari osti. Ég tók smávegis af ostinum og bragðbætti með saxaðri steinselju, salti og hvítlausdutfi og hafði ofan á glænýtt hrökk kex Osturinn geymist í ísskáp í um viku en er bestur nýlagaður. þetta magn gerir um 200 gr af osti í kvold var ég með Carbonapasta, gerði reindar líka ferskt pasta og gerði Focaccia brauðið sem ég hef gert svo oft nema ég breytti að eins í sambandi við gerið ég notaði þurrger 1, 1/2 tsk en ekki pressuger og lengdi þá hefingartíman um 30 mín. þetta heppnaðist frábærlega og ég held bara að þetta hafi verið besta Focacciabrauð sem ég hef smakkað
set hér upprunalegu uppskrfitina með pressugerinu sem er líka inní brauðdálkinum hér til hliðar uppskrift frá Jóa Fel, heppanst alltaf rosalega vel, vinsælasta matarbrauðið á mínu heimili 450 g hveiti 70 g semolinohveiti 15 g pressuger 10 g salt 50 g ólífuolía 320 g vatn setjið saman hveiti og semolina, brjótið gerið saman við með fingrunum. Setjið vatn og olíu út í ásamt saltinu. Vinnið deigið rólega saman í 2 mín., vinnið svo deigið á miðjuhraða í ca. 6–7 mín. Deigið á að vera svolítið klístrað. Sláið deiginu upp í kúlu og látið það standa undir rökum klút í 60 mín. setjið deigið á plötu eftir 1 klst. í hefingu. Fletjið deigið út með höndunum en gætið þess að lemja það ekki mikið niður. Reynið að hafa deigið jafn þykkt á plötunni. Penslið vel með ólífuolíu yfir deigið, setjið maldonsalt yfir og ferskt rósmarin. Setjið mikið af puttaförum í deigið. Setjið deigið inn í 250°C heitan ofninn, úðið vatni um leið og deigið er sett inn í ofninn, lækkið hitann niður í 230°C og bakið í um 13–15 mín. Bakið þar til brauðið er gullið að lit. Í kvöld ætla ég að hafa lítið matarboð og ætla að bjóða upp á þennan rétt fyllt kalkúnalund en eftir matin ætla ég að bjóða upp á súkkulaði mús í desert
súkkulaðimús Í þessari uppskrift er notast við bæði hvíturnar og rauðurnar í eggjunum og að sjálfsögðu gott, dökkt súkkulaði. útkoman er himnesk súkkulaði mús
Stífþeytið eggjahvíturnar ásamt sykrinum og blandið þeim varlega út í eggjahræruna. Það er best að gera það með sleif eða sleikju. Þeytið síðan rjómann og bætið honum við blönduna. Setjið í glös eða skálar, þetta magn passar í cirka 4 glös eða skálar á stétt eða 6 minni, kælið í ísskáp í amk 2 klst. ég bauð upp á þessar ljúfengu kjötbollur sem pinnamat þegar maðurinn minn átti stór afmæli fyrir 2 árum og hef alltaf ætlað að prófa að hafa þær í matin og hafa þá hrísgrjón með ég gerði bara helminginn af meðfylgjandi uppskrift og eins og mig minnti þá voru þær ljúfengar og gott að borða þær með hvrísgrjónum og salati
(ca. 50 litlar kjötbollur):
Ofn hitaður í 200 gráður. Nautahakkið er sett í skál ásamt kryddi, eggjum, brauðmylsnu, hvítlauki og vorlauki, blandað vel saman. Litlar bollur eru mótaðar úr hakkinu og raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír. Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 10-12 mínútur eða þar til bollurnar eru tilbúnar. Á meðan bollurnar eru í ofninum er sósan útbúin. Öllum hráefnunum í sósuna er blandað vel saman. Þegar bollurnar eru tilbúnar er þeim velt upp úr sósunni eða henni hellt yfir bollurnar. Græni hlutinn af vorlauknum er saxaður og dreift yfir ásamt sesamfræjum. Bóndadags kakan þettað árið er Amerísk súkkulaðikaka, mjúk og góð og tilvalin til að heilla bóndann.
þetta er frekar stór uppskrift og kakan er ómótstæðileg. Uppskriftin er í amerískum mællieiningum. Ef þið eruð ekki með bollamál er amerískur bolli rétt tæpir 2,4 dl. En hér kemur uppskriftin af þessarri amerísku súkkulaðibombu, Það er gott að hafa þeyttan rjóma með kökunni og stundum er ég með hindberja sósu eins og ég gerði með Bailys frómasinum um áramótin. en hér er uppskriftin
Blandið saman í stórri skál hveitinu, sykrinum, matarsódanum, salt og kakó. Hrærið vel saman olíu, súrmjólk og eggjum. Bætið kaffinu i bunu út í á meðan hrært er í. Gott er að nota sleif til að skrapa botninn og blanda deiginu vel saman. Bætið að síðustu vanillu út í og hrærið saman. Bakist í 30 – 35 mín. Stingið hníf í deigið, hann á að koma hreinn út. Athugið að tíminn er svolítið eftir ofni, ég var með mínar eitthvað lengur og þvi öruggast að treysta á hnífinn frekar en klukkuna Leyfið siðan kökunni að jafna sig í 15-20 mín áður en hún er tekin úr forminu. mælt er með 9" smelliformi en oftast nota ég skúffukökumót sem er 20x30 cm líka fínt að nota 2 26cm form. Að þessu sinni notaði ég lítið hjartaform og gerði tvær þannig og setti afgangin í 20 bollakökuform sem bakaði og setti svo í frysti. kremið sem ég notaði: mér finnst ekki gott að hafa mikið smjörbragð svo ég er dáldið sparsöm á smjörið í kremið. 125 gr mjúkt smör 3/4 bolli kakó 3 og 1/2 bolli flórsykur örlítið salt heitt kaffi eftir þörfum flórsykur og kakó sigtað í skál og restinni svo bætt í og hrært vel þar til þyktin sem þið viljið er komin, muna bara að nota ekki of mikið kaffi í einu því þá getur kremið orðið of mjúkt en þykktin fer eftir hvernig þið ætlið að notað það. Kremið var heldur mjúkt hjá mér að þessu sinni til að gera svona rósir en ég lét það duga kvöldmaturinn í kvöld var einstaklega vel heppnaður enda bara eintóm hollusta. kjúklingurinn sem var 1250gr áður en hann var eldaður dugar fyrir 3 manneskjur.
Ég bar fram með þessu mais korn og útbjó sósu úr soðinu sem ég bragðbætti með kjúklingakrafti og salti og bætti útí matreiðslurjóma. fyrir sumar var sósan punkturinn yfir i-ið en perósnulega vildi ég frekar soðið úr fatinu yfir, mjög gott að borða smávegis af appelsínunni með þessu. ATH: eldunar tími fer alltaf eftir stærð, sá sem ég eldaði þarna var 1100gr og náði hann að eldast í gegn á 50 mínútum en annars þegar maður er með kjukling ber alltaf að hafa varan á og ef fólk er ekki með hitamæli í kjötinu er einfalt að skera í kjötið þar sem það er þykkast og skoða hvort það sé eldað Fennel hefur gott bragð, sem minnir svolítið á anís, og er jurtin og krydd af henni vinsæl í ítalskri matargerð.
Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna, setjið lokið á og látið malla í þrjár til fjórar mínútur. Takið af pönnunni og geymið. Bætið við olíu á pönnuna og steikið kjúklingabitana og um matskeið af fersku rósmarín. Saltið og piprið. Þegar kjúklingurinn er fulleldaður er hvítlauknum bætt út í og steiktur með í um hálfa mínútu. Bætið loks fennikkunni og vökvanum saman við. Leyfið að malla í nokkrar mínútur. Slökvið á hitanum og bætið steinseljunni saman við. Berið fram með hrísgrjónum soðnum í kjúklingasoði (ein teskeið af krafti út í vatnið og rósmarín grein ). |
Archives
June 2019
Categories |