Á þriðjudaginn var ég með heimagert guacamole með matnum og þar sem guacamole dökknar alltaf við geymslu gerði ég tilraun til að geyma það með því að setja sítrónusafa í ílátið og velta safanum svo hann færi í alla skálina setti svo guacamole í og sítrónusafa ofaná og lokaði, á myndinni sjáið þið útkomuna. óskemmt guacamole sem við gátum borðað með afgangnum og mexíkóska réttinum góða réttinum góða sem er hér
0 Comments
Var með þessa virkilega góðu fiskisúpu í kvöld, fiskurinn sem ég var með var 150gr þorskur, 150gr lúða, 150 gr lax og slatti af rækjum, dugar fyrir 4-6
Ég er persónulega ekki hlynnt því að þykkja súpur en manninum mínum finnst það ofur gott svo ef ég væri að gera súpuna fyrir þá sem er nkl. sama þótt súpan sé þunn þá myndi ég sleppa smjörbollunni og þá er súpan auðvitað mun léttari
saxið niður lauk og grænmeti og míkið í olíu setið karríið út í og þá hvítvínið og sjóðið niður um helming þá er kókosmjólk og vatni bætt í og salt og pipar tómatmauki og tómötum mallað á lágum hita í 15 mín. Ég notaði þá töfraspotann og maukaði súpuna dálítið en ekki of mikið samt, smakkaði til með kryddinu og þykkti með smjörbollu 80gr smjör og 60gr hveiti, svo setti ég rjómann í og steinseljuna. Athugið að láta súouna ekki sjóða eftir að rjóminn er settur í. svo er fiskurinn settur í í litlum bitum og borið fram eftir c.a. 5 mín. gott að bera fram með snittubrauði Ég er að segja ykkur að þessi réttur er hreinlega himneskur það var sunnudagur og ég bauð upp á þennan rétt sem ég setti hér fyrst inn í fyrra en tók meira af myndum núna og lagfærði uppskriftina. Ætli það sé ekki óhætt að fullyrða að þetta dugi vel fyrir 6 manneskjur því þetta er verulega saðsamt.
Byrjið á því að fletja aðeins út kjúklingasneiðarnar með flötum kjöthamri eða setið plast undir og ofan á og fletið með höndum. Hitið ofninn í 200°c Blandið saman í skál brauðraspi og öðrum helmingnum af parmessan ostinum og í aðra skál egginu. Skerið niður og setið í sér skál 1 mossarella kúlu og setið saman við restina af parmessan ostinum ásamt c.a. 2 msk af eggi, ricotta osti og spínati, blandið vel saman. Leggið kjúklinga sneið á disk, létt saltið og piprið, smyrjið c.a. 2 msk af osta-spínat blöndunni og rúllið síðan upp, veltið síðan rúlluni varlega i eggi og svo upp úr rasp/osta blöndunni leggið svo í eldfast mót sem búið er að smyrja með olíu og hafið saumhliðina niður, þá er óþarfi að pinna þetta saman. bakið í 25 mínútur og takið út úr ofninum og setið sósu yfir hverja rúllu og skiptið restinni af mossarella ostinum yfir og setið aftur i ofninn uns osturinn er bráðin og byrjaður að brúnast, ég bar þetta fram með afgang af pizza og sósunni, pasta og salati Pizza sósa
Í vikunni var ég með þennan frábæra fiskrétt sem allir voru einstaklega hrifnir af, því miður var græðgin of mikil til þess ég myndi muna eftir að taka mynd eftir að þetta kom út úr ofninum
1 kg hvítur fiskur, ég var með þorsk 1/2 krukkar sólþurkaðir tómatar saxaðir 3 hvítlauksrif söxuð 1/2 blaðlaukur smátt skorin 3 stórir tómatar skornir 1 rauð eða græn paprika skorin 3-4 msk olía af sólþurkuðu tómötunum sjávar salt svartur pipar 1 krukka feta ostur 1 bolli rifin ostur fiskurinn snyrtur, skorin í hæfileg stykki og raðað í eldfast mót salt og pipar, grænmeti og laukur sett yfir og olía feta osti dreyfir yfir og þar næst rifin ostur, bakað í ofni við 200°c í 30 mín. ég bar þetta fram með kartöflum og fersku salati en þetta passar alveg eins með hrísgrjónum. mÍ tilefni af afmælinu mínu bakaði ég í þetta sinn köku sem mig langaði sjálfa í stað þess að baka það sem ég held að öðrum langi til að fá ég notaði bara raspað suðusúkkulaði (nennti ekki aftur í búðina ) og sykurmassablóm í tilefni dagsins til að skreyta
marengsbotnar 4 eggjahvítur 1 dl púðursykur 2 dl sykur 2 bollar rice crispies Stífþeytið eggjahvíturnar og setið sykurinn smátt og smátt saman við þegar þetta er orðið alveg stíft þá er rice crispies sett varlega saman við. Sett á bökunarpappír, og bakað við 150°c í c.a 90 mín. Sett saman með 1/2 líter þeyttum rjóma og kremi ( sjá neðar) kremið 100gr sírius rjómasúkkulaði eða 50gr sírius suðusúkkulaði eða 50gr sírius rjómasúkkulaði 4 eggjarauður 80 gr mjúkt smjör 60 gr flórsykur bræðið súkkulaðið yfir vatsbaði eða í örbylgju ofni, hrærið saman eggjarauðum, smjöri og flórsykri þar til blandan verður ofur létt þá er súkkulaðið sett saman við og blandað vel saman, setja saman setja smá krem yfir einn botn c.a 1/3 af kreminu þá er 2 og 1/2 l þeyttur rjómi settur yfir svo hinn botninn og restin af kreminu þar yfir skreytt með því sem hugurinn girnist, t.d salthnetum og súkkulaðirúsínum hversu yndælt það er að geta sett matinn í ofninn ð morgni og ekkert hugsað um hann fyrr en seinnipartinn, á fostudaginn langa var ég með læri sem var 8 tíma ó ofninum á rúmum 100 gráðum, bragðast svo líka vel og soðið notað í sósu enda hafði soðið tekið í sig bragðið úr öllu grænmetinu ég reyndar setti sætu kartöflunar ekki fyrr en 3 tím voru eftir af eldun því ég vildi ekki að þær sætu myndu maukast. EN allavega var ég með læri sem var 2,7kg og grænmetið var kartöflur 4 hvítlauksrif laukur gulrætur paprika sætar kartöflur Ég kryddaði lærið með lamb íslandia pipar salt paprika ég setti c.a. 500ml af vatni í botnin og síðan inn í ofninn prófaði þessan yndislega rétt í gær og allir yfir sig hrifnir, ég mun þó prófa næst að gera þetta með Rocotta osti og finna munin, ég geri ráð fyrir að það sé betra en hver veit því þetta var virkilega ljuft svona.
2 kjúklingabringur, skornar í litla bita 3 hvítlausrif, smátt söxuð 1 laukur, saxaður 2 tómatar. saxaðir 1 dós tómatar, 150-200 gr spínat, gróft saxað 100gr Philadelphia rjómaostur 200 gr pasta skrúfur eða annað pasta, soðið 100 gr rifin ostur, ég notaði pizza blöndu frá ms 1/2 bolli rifin parmessan sjávar salt svartur pipar góð lúka ferskt basil, saxað eða rúm tsk þurkað kjúklingurinn saltaður og pipraður, steiktur á pönnu í olíu og settur til hliðar. Laukurinn settur á pönnu og mýktur í olíu bætið við tómötum salti og pipar (og basil ef þið notið þurkað) og síðan rjómaostinum hrærið vel saman og látið malla í nokkrar mínútur bætið þá kjúklingnum saman við og soðnu pastanu því næst er spínatinu hrært saman við og látið malla 2-3 mín því næst er basil sett saman við, smakkið til með salti og pipar. Setið í eldfast mót og ostinn yfir. Eldið í ofni við 220°c þar til osturinn er gullinn. Ég setti bara ost yfir þetta á pönnunni og setti í ofn, það er hægt ef pönnurnar þola að fara í ofn. Með þessu hafði ég hvítlauksbrauð og ferskt salat og raspaði parmessan yfir. fyrir nokkrum dögum gerði ég indverskan rétt sem ég smakkaði fyrst á á Indversku veitingahúsi á Spáni og var mjög hrifin af.
Þetta dugar fyrir 3
byrjið á að svissa laukinn og engiferið bætið svo við chili og kryddi látið malla í 3-4 mínútur, bætið þá tið tómötunum og sítrónusafanum, bætið þá við kjúklingnum setið lokið á og látið malla í 20 mínútur, hrærið í öðruhvoru, ef þetta þykkist of mikið þá getið þið bætt við örlitlu vatni. Kóriender er svo sett út í rétt áður en þetta er borið fram Ég bar þetta fram með kælisósu sem er gerð úr AB mjólk, ananas og tandori kryddi, heimagerðu naan brauði og hvítum hrísgrjónum fyrir beikon unnendur er ekki úr vegi að vera með beikon hjúpaðan hakk rétt í ofni og ekki verra að nota góða hakkið frá Matarbúrinu sem er alltaf á allra aukaefna, þetta dugar fyrir 5 manns. Allir voru bara mjög ánægðir með þetta hér á bæ enda bacon unnendur í meirihluta hér.
blandið saman í skál öllu nema ostinum, papriku, baconinu og soya sósu. Leggið matarfilmu till hvoru megin við eldfasta mótið. og leggið beikonið í fatið eins og sést á myndunum og þrýstið helmingnum af hakkinu ofan á beikonið og setið paprikuna þar yfir og ofan á paprikuna dreifið þið ostinum síðan er restin af hakkinu sett yfir, ég setti matarfilmu á borðið og mótaði hakkið þar og setti svo ofan á í 3 pörtum, að seinustu er beikoninu sem er útfyrir raðað saman ofan á hakkinu og penslað yfir með soya sósu, sett í ofn og eldað við 220°c í uþb klukkustund. Ég bar fram með þessu kartöflumús og salat og hrásalat fyrir þá sem það vildu Með grillsteikinni í gær þá var ég með þetta auðvelda kartöflugratín sem bragðast alltaf voða vel. Ég var með rauðar kartöflur og gerði fyrir okkur hjónin bara en hafði vel af rjóma og sleppti sósu í staðin
sneiða kartöflurnar niður í þunnar sneiða og raða í botnin á eldföstu móti salt og chili explosion yfir og ostur og smá rjómi og annað lag yfir og salt rjómi og ostur yfir. ef þið gerið meira má alvega vea fleyri en 2 lög. ég hafði þetta í ofni í 50 mínútur, það dugði fyrir rauður kartöflurnar. |
Archives
June 2019
Categories |
- Blog
- Allar uppskriftir
- Forréttir
-
Kjöt og kjötréttir
- Beikon hjúpaður hakkréttur í ofni
- Indónesískar Kjötbollur
- Geggjaður mexíkóskur ofnréttur
- BBQ svínarif og hrásalat (coleslaw)
- Úr afgangskjöti má gera dýrindis máltíð
- Innbökuð nautalund eða beef wellington á áramótum
- Beikonvafðar fylltar svínalundir
- Klikkaður grillaður gráðosta borgari með beikoni og ananas
- Marinerað og grillað lambalæri
- Spænskar kjötbollur í tómatsósu
- Nautasteik
- Basic en góðar kjötbollur
- Chili con carne
- Indverskir réttir
-
kjúklinga réttir og annað fuglakjöt
- Hasselback kjúklingur með ricotta osti
- Eldfast mót fullt af hollustu
- Ljúfur Fennel Kjuklingur
- Kjúklingalæri marineruð í appelsínu og five spice
- Góð marinering fyrir kjúkling
- Fyllt kalkúnalund með sveppasósu
- Kjúklingapottréttur
- Risotto með kjúkling og chorizo
- Fáranlega góðar kjúklingarúllur með spínat og parmessan fyllingu
- Piri piri, grillaður kjúklingur
- Afgangurinn af Piri piri kjúklingnum varð að ljúfengri máltíð
- Kjúklingur á pönnu með sólþurkuðum og hvítlauk
- Kjúklinga vorrúllur
- Grilluð kjúklingaspjót með satay sósu, hrísgrónum og sweet chili salati
- Chili/hvítlauks kjúklingabringur
- Fyllt kalkúnabringa með parmaskinku og sólþurkuðum tómötum
- Grillaðar kalkúnasneiðar, sætar kartöflur og kúrbítur
- Líbanskur kjúklingur
- Hunagsristuð önd
- Piri Piri kjúklingur
- Kjúklingur í ofni með Expresso rub
- fyllt Kalkúnabringa
-
pastaréttir
- Tortellini með piparosti og spergilkáli
- Kjúklingapasta sem klikkar ekki
- Heimagert Ravioli með kjötfyllingu
- Kjúklingapasta í ofni
- Rugl gott pasta með kjúkling, aspas og rjómaosti
- Kjötsósan góða fyrir spaghetti
- kjúklingur og spelt tagliatelle
- Ferskt spelt pasta
- Ferskt pasta
- Carbonara pasta með beikon og grænum baunum
- Lasagna að mínum hætti
- Sítrónupasta með skinku.
-
Fiskréttir
- Fiskur í ofni með sólþurkuðum og feta
- Smálúða á osta risotto beði
- Ofnbakaður lax me five spice
- Sítrónu þorskur í ofni
- Mín útgáfa af plokkfisk
- Þorskur með parmaskinku og cheddarosti
- Pönnusteiktur lax með bankabyggi og salati
- Fiskur með kókos og engifer
- Þorskur á spínatbeði
- góðar Fiskibollur
- Rauðspretturúllur með sólþurkuðum tómötum
- Fiskur með AB Mjólk og pestó
- Fiskur með aspas og fl bakað í ofni .
- Saltfiskur á miðjarðarhafsvísu
-
sósur og meðlæti
- Bökuð kartöflu mús með bacon
- Einfalt kartöflugratin
- Grillað mais á stöngli
- Tómatsallat með mozzarella
- Góð sveppasósa
- Sweet chili salat
- Dýrindis kjúklingabauna salat
- Koníakssósa
- Chimichurri
- Steikt bankabygg með hvítlauk
- bernaise sósa
- Rauðvínssósa með steikinni
- Köld hvítlaukssósa
- Sósa fyrir kalkún
- Guacamole
- Sætkartöflumús
- hvítkálsalat
- Smjörsteiktur Aspas
- Rauðkál
- Austurlönd
- Súpur
- Brauðréttir og Brauð
-
kökur og kaffibrauð
- Sýrópskökur ( piparkökur)
- Alger Blúnda
- Hnoðuð lagterta, ( randalín )
- Þjóðhátíða snúðar og vínarbrauð
- Dásamlega góðar súkkulaðistangir
- Súkkulaði skúffukaka
- Súkkulaðibita kaka Erlu
- Lagterta (hrærð)
- Kókos toppar
- Bananabrauð
- Rabbabara pæ
- Súkkulaðibita muffins
- Spelt skonsur
- Kleinur
- Gömul en góð uppskrift af Vatnsdeigs bollum
- Tertur
- Kokosbollu terta
- sörur
- Súkkulaðibitakökurnar hennar ömmu
- Eftirréttir
- Heilsuréttir og hollusta
- Ýmislegt
- köku skreytingarnar mínar
- Um mig